Leita í fréttum mbl.is

Jörðin er flöt og Ivermectin virkar ekki

INNGANGUR

Síðastliðinn sunnudag birtist umfjöllun í Morgunblaðinu um lyfið Ivermectin og úrdráttur úr henni á mbl.is með yfirskriftinni „Engin stoð í sögum um ofurmátt Ivermectin“. Sjá hér…

RÚV bætti um betur síðastliðinn föstudag með frétt sem bar titilinn „EkkiIVM-hero útlit fyrir að Ivermectin sé töfralausn“. Sjá hér…
Sú grein er raunar grein um grein. Það er grein þeirra félaga Jóns M. Jóhannessonar deildarlæknis á LSH og Magnúsar K. Magnússonar prófessors við læknadeild HÍ, með yfirskriftinni „Benda nýjustu rannsóknir til þess að ivermectin gagnist sem meðferð við COVID-19?“. Sjá hér…

Síðastliðinn föstudag bætir svo mbl.is um betur með því að nánast afrita hugsunarlaust grein RÚV.
Sjá hér…

Það er merkilegt hvað slík greinaskrif færast í aukanna í kjölfar þess að fleiri og fleiri hér á landi eru orðnir upplýstir um gagnsemi þessa lyfs í baráttunni við Covid-19 og hafa jafnvel reynt það. Töluvert hefur verið bloggað um lyfið og mikið af góðum upplýsingum flætt á félagsmiðlum, á meðan fjölmiðlar hafa þagað þunnu hljóði. Sjálfur bloggaði ég fyrir skömmu um lyfið sem vakti mikla athygli. Sjá hér…

Sú staðreynd ein hvað mótstöðu-öflum lyfsins er mikið í mun að þagga allt um það eða rakka það niður sem lyf gegn Covid-19, hlýtur að segja okkur hvað lyfið er öflugt sem lyf í baráttunni við vírusinn.

VÍSAÐ TIL FÖÐURHÚSANNA

Í fyrstu ætlaði ég að blogga hér og reka báðar greinar til föðurhúsanna, enda létt verk, fyrir þá sem þekkja til. Báðar greinarnar eru á pari við þaðmogga-kalli að reyna að sýna fólki fram á að jörðin sé flöt.
Það er svo margbúið að sýna fram á virkni-mátt Ivermectins gegn Covid-19, að það jaðrar við óðs manns æði að reyna að sanna hið gagnstæða.

Læt því nægja hér í því sambandi að vísa í skrif í heimilislæknisins  Guðmundar Karls Snæbjörnssonar (Kalli Snæ) á fésbókarvegg sinn þann 6 ágúst með yfirskriftinni „ÚPSA DEISÍ GÓÐU KOLLEGAR - ENN Á NÝ OG AFTUR mærið þið snargallaða rannsókn - koma svo, gera betur en þetta“. Sjá hér…

Þess má geta hér að Guðmundur Karl er sennilega mesti sérfræðingur hér á landi um lyfið.
Þá vil ég einnig benda á fyrra blogg mitt um Ivermectin, sem er vísindalega studd grein um áhrifamátt lyfsins Ivermectin í baráttunni við Covid-19. Sjá hér… og hér…

Og að lokum fyrir þá sem vilja heyra um fjölda lækna sem beita lyfinu með góðum árangri um heim allan, þá er síða „Front Line COVID-19 Critical Care Alliance“  (FLCCC) góður byrjunarpunktur.

Í þessari grein ætla ég miklu fremur að beina sjónum mínum að hvað þeim gengur til sem gera allt sem þau geta til að stöðva framgöngu þessa lyfs í baráttunni við faraldurinn.
Sérstaklega að deildarlæknir við LSH og læknaprófessor við HÍ skuli leggja nafn sitt og starfsheiður við slíka baráttu, er grafalvarleg staðreynd.

ÞÓ ÞETTA  FYRST UM GREIN MBL

Það er eitt atriði sem skrif Guðmundar Karls taka ekki á, en það er642401 eftirfarandi fullyrðing í grein mbl.is:
„Meira að segja framleiðandinn, Merck, sagði enga vísindalega stoð fyrir því að lyfið hefði áhrif á veiruna og það gæti valdið skaða ef það væri notað með röngum hætti“.

Fyrir það fyrsta er Merck ekki eini framleiðandi lyfsins lengur, ef það yfir höfuð framleiðir það enn. Í upphafi hafði Merck einkaleyfi á framleiðslunni, en það einkaleyfi er löngu runnið út. Merck hefur því engra fjárhagslegra hagsmuna að gæta af Ivermectin í dag. Miklu fremur hefur það ásamt hinum risunum á lyfjamarkaði, mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta, að framgangur þess verði enginn því Merck hefur sett gríðarlega fjármuni í að  þróa lyf gegn Covid-19. Sjá hér…
Það má því ljóst vera að ef upp kæmist um verkan Ivermectin þá væri búið með alla þróun slíks lyfs og hagnað því tengdu, sama mundi gerast með svo nefnd bóluefni gegn Covid-19.

Pierre Kory einn fremsti læknir FLCCC samtakanna talaði eitt sinn um „gamla Merck“ sem hafði að leiðarljósi að hjálpa fólki og svo „nýja Merck“ sem hefur að leiðarljósi að græða peninga, enda eigendurnir aðrir í dag en var. Í því sambandi er áhugavert að rifja upp orð George W. Merck,  stofnanda Merck:
„Við reynum að gleyma því aldrei að lyf eru fyrir fólkið. Þau eru ekki fyrir hagnaðinn. Hagnaðurinn fylgir í kjölfarið“
Hefur nýja Merck kannski snúið þessum ummælum við; „Fyrst hagnaðurinn svo fólkið“?

JÖRÐIN ER FLÖT

Þrátt fyrir að það hafi verið ljóst mannkyni fyrir komu Krists aðfile-20180514-100722-1yxg7ip jörðin væri sennilega kúlulaga, þá er enn til fólk sem trúir á kenningar um að jörðin sé flöt. Sjá hér…
Skoðum fyrrgreinda fréttatitla í því ljósi:
Fyrst mbl.is: „Engin stoð í sögum um að Jörðin sé kúlulaga“
Vísindavefurinn: „Benda nýjustu rannsóknir til þess að Jörðin sé kúlulaga?“

Hver mundi taka svona titla alvarlega í dag? Kannski deildarlæknir á LSH og prófessor við læknadeild HÍ? Ef þeir gerðu það þá mundi maður álykta að eitthvað mikið væri að hjá læknadeild HÍ og LSH, ekki satt?
Maður mundi velta fyrir sér hvort viðkomandi væri borgað fyrir að halda slíku fram eða ættu ríkra hagsmuna að gæta hjá öflugum aðilum sem héldu slíku bulli fram. Eða kannski vildu þeir bara vekja athygli á sjálfum sér í vísindasamfélaginu?

Svo merkilega vill til reyndar að þessir félagar gegn Ivermectin byggja grein sína á rannsókn gerða af stofnun sem er mjög fjárhagslega háð lyfja-iðnaðinum og Bill-Gates Foundation.
Rannsókn sem RÚV í grein sinni kallar „Vandaðasta rannsókn sem hingað til hefur verið unnin…“ býr þar með til frétt (lygi) í stað þess að segja frétt (sannleika).  En það er nú ekkert nýtt á þeim bæ.

LÆKNAEIÐURINN, ALVARLEIKI MÁLS

Þrátt fyrir að allur þessi fréttaflutningur stóru miðlanna og greinaskrif „virtra sérfræðinga“ sé í sjálfu sér aðhlátursefni þá er það samt grafalvarleg staðreynd í ljósi þess að málið snýst um líf og heilsu fólks og stöðu alls atvinnu- og efnahagslífs.

Ofangreindir tveir læknar auk þeirra sem taka ákvarðanir eða gefa stjórnvöldum ráðgjöf um sóttvarnir hafa beitt sér gegn lyfinu og ekki skal gleyma hlut Lyfjastofnunar í því skemmdarverki. Stofnunin hefur fengið á sig ósvaraða stjórnsýslukæru fyrir svaraleysi við athæfi sínu.
Það er ekki nóg með að ofangreind hafni lyfinu, heldur beinlínis vinna gegn því með lyga-áróðri og jafnvel ofsóknum á hendur þeim sem reyna að upplýsa um lyfið. Sjá hér…

Á að segja okkur það að ofangreindir félagar viti ekki betur en þeir skrifa. Hljóta þeir ekki að vita betur? Þeir hljóta að vera betur færir að vinna vísindalega og byggja mál sitt á vísindalegum grunni en þeir gera í skrifum sínum. 
Hvers vegna setja þeir þá starfsheiður sinn að veði fyrir slík skrif?
Sömu spurningar má spyrja um aðra sem ráða för svo sem Lyfjastofnun, sóttvarnalækni og yfirmenn smitsjúkdómadeildar LSH.

KVALIR, LÍF OG DAUÐI

Það dó einn einstaklingur á LSH úr Covid-19 síðastliðið vor þe559px-The_death.svggar löngu var ljós lækningarmáttur Ivermectin við sama sjúkdóm. Ég geri ráð fyrir að Ivermectin hafi ekki verið reynt til að bjarga honum? Hvað heitir það þegar sjúkrahús er uppvíst að því að reyna ekki viðurkennda lækningu og sjúklingur deyr í höndum þeirra?

Í dag eru nokkrir Covid-19 sjúklingar á LSH og eru væntanlega ekki höndlaðir með Ivermectin. Lyf sem þegar er búið að sýna fram á að léttir mjög veikindi  og bjargar Covid-19 sjúklingum frá kvölum og jafnvel dauða.
Hvað heitir slík ekki-meðferð á sjúkrahúsi?

Almenningur í þessu landi bólusettur og  óbólusettur, lifir í ótta við sjúkdóminn og á svo að lifa um ókomin ár, ef maður skilur sóttvarnalækni rétt. Að geta sótt sér ódýrt vel prófað lyf sem verkar fyrirbyggjandi 85% eða meira, mundi eyða þeim ótta algjörlega.
Að hafna almenningu aðgang að slíku lyfi hvað heitir það?

Að setja óbólusetta í lífshættu með því að hafna þeim um vel þekkt og vel reynt lyf til forvarnar,  fólk sem hafnar að taka þátt í lyfjatilraun eða svo nefndu bólusetningum.
Hvað heitir það?

Sem betur fer er samt Ivermectin stöðugt meira notað í Covid-baráttunni um allan heim þrátt fyrir harða andstöðu WHO, Lyfjastofnunar Evrópu og stjórnvalda hér á landi sem annarsstaðar.
Einmitt það er að safna glóðum elds á höfði mótstöðuaflanna.

SANNLEIKURINN MUN SIGRA?

Þýska ríkið tapaði síðari heimstyrjöld þó mjóu hefði mátt muna. Í kjölfariðposverdad-facts-1454x954 voru sett á laggirnar Nüremberg réttarhöldin, sem dæmdu þá sem fyrir voðaverkum Nasista stóðu. Í þeim réttarhöldum dugði ekki að reyna að koma sér undan sök með orðunum „ég var bara að fylgja skipunum“.
Maður getur varla hugsað til þess hryllings sem orðið hefði ef bandamenn hefðu tapað stríðinu og þessi réttarhöld aldrei orðið

Vonandi endar þetta Covid-stríð sem margir nefna þriðju heimstyrjöldina með sigri á þeim öflum sem misnota sér ótta fólks og koma í veg fyrir lausnir vandans (svo sem Ivermectin).
Ef svo verður þarf að rannsaka hvað fór úrskeiðis og draga menn og stofnanir í þessu landi til ábyrgðar sem og um allan heim.

Ef þessi öfl sigra hins vegar, þá getur Guð einn hjálpað þeim sem hjálpar leita.

LOKAORÐ TIL DEILDARLÆKNISINS OG PRÓFESSORSINS

Ég loka þessu svo með að endurtaka orð George W. Merck, stofnanda samnefnds lyfjafyrirtækis:
„Við reynum að gleyma því aldrei að lyf eru fyrir fólkið“6h8C6ygTdR2jyyUxkALwsc-970-80

Læknar góðir, Jón M. Jóhannesson deildarlæknir á LSH og Magnús K. Magnússonar prófessors við læknadeild HÍ, fyrir hverja er ykkar vinna, hvaðs tilgangi þjóna skrif ykkar?

Kannski áður en þið skrifið meira eða áður en þið biðjist afsökunar á skrifum ykkar ættuð þið að lesa eftirfarandi.  Ég treysti að þið séuð báðir læsir á enska tungu. Ef svo er ekki, endilega látið mig vita og ég skal sjá til þess að þetta verði þýtt fyrir ykkur:

In India´s recent deadly second pandemic surge, Ivermectin obliterated their crisis. Within weeks after the ICMR and AIIMS adopted Ivermectin, their cases are down 90% [414,188 to 42,640]. Those states with more aggressive Ivermectin use were down more dramatically; Daily cases in Goa, Uttarakhand, Uttar Pradesh, and Delhi were down 95%, 98%, 99%, 99%, respectively.

Dr. Kory and the FLCCC published a narrative review in the American Journal of Therapeutics in May 2021, showing the massive effectiveness of Ivermectin against COVID-19 in reducing death and cases.  They concluded that it must be adopted globally immediately.

https://journals.lww.com/americantherapeutics/fulltext/2021/06000/review_of_the_emerging_evidence_demonstrating_the.4.aspx

Dr. Tess Lawrie, a highly regarded WHO consultant and the British Ivermectin Development Panel, published a meta-analysis this month that came to a similar conclusion.

https://journals.lww.com/americantherapeutics/abstract/9000/ivermectin_for_prevention_and_treatment_of.98040.aspx

 

Former Director of Intellectual Property at Gilead Pharmaceuticals, Harvard-educated attorney, Brian Remy, wrote this about the necessity of implementing Ivermectin,

"It is simple - use what works and is most effective - period. Ivermectin used in combination with other therapeutics is a no-brainer and should be the standard of care for COVID-19. Not only would this be good for business and help avoid the criticism and bad PR, and potential civil/criminal liability for censorship, scientific misconduct, etc. for misrepresentation of Ivermectin and other generics, but most importantly it would save countless lives and end the pandemic for good."

Sjá í heild sinni hér…


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Þröstur Jónsson
Þröstur Jónsson

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband